10desember

Jólafrí



Jibbí það er komið jólafrí loksins hef beðið eftir þessu í margar vikur. Siðasta prófið mitt var í dag mánudaginn 10 desember. Síðasta prófið var náttúrufræði 103 og það gekk mjög vel en samtals var ég í 6 prófum og allt var þetta lokapróf prófin voru

íþróttir 201
íslenska 212
Enska 212
Stærðfræði 492 
Uppeldisfræði 203
Náttúrufræði 103

En svo er ég að fara að vinna í kvöld við að þrífa bónus þannig að það er ekki bara sæld í gangi. Jæja það er allt í lagi fæ þó pening fyrir þetta annars væri ég líka ekki að gera þetta ef ég fengi engan pening. Síðasti næturvaktar þátturinn var svo í gærkvöldi en annars í gær var ég eiginlega bara að læra og jú horfa aðeins á sjónvarpið.  En ég skal vera dugleg að blogga í framtíðinni þá meina ég það ekki eins og síðast en reyndar síðast þegar ég ætlaði að blogga þá eyddist bloggið og var sú fúl að ég bloggaði ekki aftur fyrr en nú.
En svo vil ég láta ykkur vita af hinni síðunni minn og hennar Ernu um Akureyri
Slóðin er www.blog.central.is/akur-eyri



10. desember 2007 klukkan 16:15
Hugrún Erla Karlsdóttir
1 athugasemd
01október

Myspace shit

Hissa


Ég er hérna heima og ég verð að fara bráðum að fara að vera duglegri að blogga. En ég er hérna heima að reyna að búa til myspace en það virkar ekkert sérstaklega vel vegna þess að ég hef aldrei gert það áður og get ekki sett inn svona til dæmis eitthvað um mig eða eitthvað eða lög eða eithvað eða breyta bakrunn er bara komin með stjörnumerki og að ég sé single og hvað ég er gömul og mynd annars ekki meir.

Jæja eins og ég sagði hérna áðan ætla ég að vera duglegri að blogga enda hafa vinir minir verið að segja mér að fara að blogga enda hef ég ekki bloggað síðan í maí ég hef nokkrum sinnum sett upp heimasíðu en einhvern megin ekki gengið upp að ég hef til dæmis ekki hugsað um hana og svo að endanum gleymt lykilorðinu

ÉG TRÚI SAMT EKKI AÐ ÖNNIN SÉ AÐ VERÐA BÚIN. Eftir löngu helgina sem er næsta helgi eftir næstum því eftir viku enda er ég orðin mjög stressuð enda langar mér eins og flestum örugglega að ná öll.
Sumarið hjá mér hefur samt verið bara mjög rólegt eins og ég fór 2 til Akureyrar sem er náttúrulega besti bær í heimi hehe ég bjó einu sinni á Akureyri frá 0-15 ára, ég  fór bæði um bílahelgina eða helgina um 17 júní öðru nafni og ég og Haffa vinkona mín fórum saman þangað og við  fengum að fljóta með bróður minum sem var einnig að fara til akureyrar. Svo fór ég um Verslunarmannahelgina og það var líka mjög gaman og var þar með frænda mínum sem er einu ári yngri en ég og einni vinkonu minni sem heitir Rósa sem er líka einu ári yngri en ég og þessi helgi var bara rosalega skemmtileg.


Ég ætla segja þettta gott í bili og ég ætla að verða duglegri að blogga núna í framtíðinni

01. október 2007 klukkan 23:03
Hugrún Erla Karlsdóttir
3 athugasemdir
16maí

vinnan byrjuđ



Jamm og jæja nú er ég byrjuð að vinna úiu Barra sem er skígræktarstöð é Egilsstöðum. ég byrjaði á mánudaginn  14 maí en ég var svoldið hissa hvað ég þekkti marga þarna ´´eg bjóst við bara að ég myndi þekkja bara eina vinkonu mína sem ég vissi vel að væri að fara að vinna þarna. En ég þekkt svo bara mjög mjög marga þarna. Fyrsta daginn og þriðja sem er í dag var ég út á Hallormsstað að flokka. Þið sem vitið það ekki er að taka óflokkað bakka með trjám og sitja annars vega stórar plöntur og litlar og beyglaðir í lítinn svo fara bakkarnir seinna til fólks. Það´var ágætt en svo dag 2 var ég  inn í gróðurhúsinu að gera ýmsilegt þar inni. En svo þurftir ég að fara aðeins fyrir 3 en átti að vera til 5. Svo bráðlega þarf ég að fara í blóðprufu sem er ekki skemmtilegt af því að ég hata sprautur sérstaklega blóðprufur.


En hey bestu auglýsingar eins og er finnst mér thule aulýsingarnar sem Pétur leikur í sem geríst í flugvél ''Thule svell kaldur,, hehe. Svo er það Aulýsingin frá Byko með kellingunni úr Fóstbræður sú sem er alveg ógðelega hörð og sterk  hún er líka fyndin. Svo er það Spron aulýsingin með ríka og kröfuharða unglinginn fyrst kom auglýsingin um ferminguna og svo aulýsing um unlingavinnuna og að lokum um barnapössun hún er líka frekar fyndin en ég held að ég ætla ekki að blogga meira og ætla að halda áfram að horfa America next top model


BæBæ

  

16. maí 2007 klukkan 21:22
Hugrún Erla Karlsdóttir
Engin athugasemd
11maí

ísland tap<đi eina ferđina enn



Jæja nú er Eurovision búið eina ferðina en og við komust ekki upp úr fjandans forkeppninni maður verður svoldið pirraður á því að aldrei að komast upp úr þessari forkeppni. Maður hefur verið að gera sér falskar vonir um að komast upp úr forkeppnininni en svo varð raunin ekki. Ég hélt þegar ég heyrði um í f´rettunum að við hefðum fengið mikið lof frá finnum á svæðinu á meðan æfingar voru. En það hommalegat sem ég hef ævinni séð var í þessari keppni og það er lagið Drama Queen frá danmörku meira að segja nafnið var hommalegt og það var didi eða eitthvað álíka en gott fólk þetta var karlmaður í drag og var í kjól og það er það mest hommalegast og það var ekkert víður kjóll þetta var alveg níþröngur  dökk bleikur kjóll og svo var það söngröddin í manninum sem var líka mjög kvennleg, Svo var hann með augnskugga í þokkabót og ef hann á konu (ef hann er ekki hommi semsagt) þá dauðvorkenni ég henni að þurfa að segja að þetta sé maðurinn sem syngur upp á sviði í kjól fyrir framan augun á milljón manns og það er allri Evrópu og líka Ástralíu. En mest vonlausasti keppandinn frá möltu og það var kona sem var búin að keppa 11 sinnum í forkeppninni í  möltu. Var svoldið að hugsa hvort  fólkið á Möltu hefði ekki orðið svoldið leitt á´henni og leyft henni að keppa í eurovision.  Enn það sem ég tók eftir er að það er rosalega mikið af löndum í kringum makedóníu og þar það voru allavega flest sem voru hleypt áfram frá lönfdunum þar í kring finnst ykkur það ekki ? Veit ekki hvort fólki finnst lögin það bara svo rosalega flott eða hvort það sé ekki bara fólkið í löndunum í kringum löndin sem vill bara kjósa frá ári til árs nágranna lönd sín.
         En í annað eins og þið vitið´frá  síðasta bloggi að ég held þá er ég í risahreingerningu heima hjá mér og er að fara líka að mála það líka. Vá hvað það verður gott þegar allt hérna veðrur allt hreint og fínt. Svo fór ég og mamma til reyðarfjarðar til þess að kaupa föt í tískuversluninni Pex þar. Ég og mamma erunm líka komin með nýtt nafn á þennan bæ og það er eyðifjörður vegna þess að við eiðum alveg rosalega miklu þar Að hálfa væri nóg þetta var það sem mamma mín gaf mér það eru Stíigvél alveg snævihvít og há en með rosalegum litlum eða engum hæl eigin lega og  svo Blend kvart buxur og kannski eins og margir vina minna elska ég Koss Blend fata merkið enda á ég 3 buxur og slatta af bolum og 2 peysur og eina vettlinga. En svo er ég á föstudaginn eða á laugardaginn að hitta hana Guðrúnu mína en við höfum ekki hisst í um það bil ár þannig ég hlakka alveg rosalega mikið til.
En ég held að ég geti ekki sagt meitr hér en   svo er ég að fara að vinna í Barra á mánudaginn og þá get ég hætt að vera skít blönk en


Bæ bæ


11. maí 2007 klukkan 00:04
Hugrún Erla Karlsdóttir
2 athugasemdir
07maí

yfirliđ á mánudegi

Jæja þá er það næst siðasta prófið búið og mér gekk bara ágætlega ég næ því vonandi en var samt alveg rosalega stressuð í þessu prófi þótt ég vissi vel að ég mundi ná því. En það hófst að lokum en svo er það bara síðasta prófið á miðvikudaginn og það er íslenska 202 og ég vona að ég nái því líka enda fékk ég 7 í vetrareinkun sem er ágæt allavega mér finnst það. En vá það gerðist eitt sem hefur aldrei gerst fyrir mig áður og það er að líða yfir mig þannig var það. Ég var að læra  undir sæng fyrir íslensku prófið en svo hringdi heimilissíminn vegna þess að ég var ein heima stóð upp en þá fékk ég allt í einu ógeðslegan mikinn svima og höfuðverk og sá ekki neitt. Svo var ég að reyna að leita simanum en þá labbaði ég á stól. En þá datt stóllinn og ég líka og augun mín lokuðust. Svo rankaði ég við mér nokkrum sekúndum seinna og vissi ekkert afhverju ég hafði staðið upp og man það samt aftur og leit á símann og betur fer var það bara mamma sem hafði verið að reyna að hringja. Svo ég hringdi aftur til baka en svo fattaði ég ekki fyrr en nokkrum mínútum seinna að það hafði liðið yfir mig og hringdi aftur í mömmu og spurði hvort það væri hægt að það líði yfir mann bara í nokkrar sekúndur og hún sagði já. Þannig alla vega að ég held því fram að það hafi liðið yfir mig. Svo eftir þetta ákvað ég að hringja í Bjarka minn og talaði við hann í svona  40 mínútur enda er hann að fara til Bandaríkina nánar tiltekið til Flórída og til borganna Miami og Orlando og verður þar í 8 daga. En ég er eftir að sakna hans alveg rosalega.
Svo eftir þessi próf ætla ég að fara að vinna í Barra sem er trjá eitthvað gróðursetning að ég held. En var komin með svo hrikalega mikið ógeð af ís og mynd þar sem ég vann. Svo strax eftir prófið ætla ég að laga til rosalega mikið inní herberginu mínu og breyta því eitthvað og mála það í einhverjum lit. Hlakka svoldið til þess að breyta enda er alveg rosalega oft drasl inni hjá mér. Svo er það bara nú eftir klukkutíma  eða svo að byrja einn að mínum uppáhalds þáttum sem er Lost(lífsháski) alveg svaklega mikil spenna í þessum þáttum en ég er farin Bæbæ

07. maí 2007 klukkan 20:21
Hugrún Erla Karlsdóttir
2 athugasemdir
07maí

Sunnudagurinn

hæhæ þá er það fyrsta bloggið mitt og ég vona að ég hel þessari uppi því að hinar hef ég gleymt lykilorðinu eða nenni ekki að hugsa um hana. Þegar ég vaknaði í morgun þá var að snjóa og það er nýbúið að vera 20 stiga hiti og svo allt í einu snjókoma svona er ísland. Mjög böggandi veðurfarsbreytingar. Ég ætlaði að vakna klukkan 10 í morgun og læra fyrir stærðfræðipróf en var ekki að meika að læra fyrir stæðfræðina og hélt bara áfram að sofa og svaf til 12. Klukkan 5 í dag fór ég út ´´i skóla í stæðrfræði ég viet skríitið að fara í stæðrfræðitíma á sunndegi. En það var samt bara aðstoðartími fyrir stærðfræði lokaprófið sem er á morgun mánudag. Mér kvíður eiginlega alls ekkert fyrir af því að ég veit vel að ég næ þessu prófi enda fékk ég 8.5 í vetrareinkunn þannig að ég ætti að ná prófinu. Svo er það bara Heroes klukkan hálff 1 endursýning vegna þess að þættirnir eru ekki á góðum tíma og það er sama tíma og Lost. Heroes eru alveg rosalega góðir þættir enda mjög vinsælir í Usa og hér á íslandi og örugglega í fleiri löndum. Annars var ég alveg óhemju löt í dag og var alls ekki að nenna að læra fyrir þetta  blessaða stærðfræði próf.
Stærðfræði Sucks

Bæ bæ

07. maí 2007 klukkan 01:23
Hugrún Erla Karlsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Könnun

Hvađ á ađ gera í vetur

Atburđarteljari

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

Klukkan

Undirsíđukubbur